Markmið uppbyggingarstefnunnar
...eru að nemendur læri:
- Að setja sér markmið, gera uppbyggingaráætlanir og stunda sjálfsrannsókn
- Að rækta og efla sinn innri áhuga
- Að bera ábyrgð á eigin námi
- Að læra leiðir til að hafa stjórn á eigin hegðun
- Að sinna þörfum sínum af ábyrgð gagnvart sjálfum sér og öðrum
- Að bera ábyrgð á eigin mistökum, leiðrétta þau og bæta fyrir þau
- Að verða þeir sjálfir - þær manneskjur sem þeir vilja vera.