JÁKVÆÐUR AGI
Einkenni Jákvæðs aga stefnunnar // Fræði
Það eru margir þættir í stefnunni sem mikilvægt er að hafa í huga. Starfsfólkið gegnir gríðarlega miklu hlutverki en mikilvægt er að þeir skilji að samskipti þeirra við nemendur eru hvetjandi, það eru ástæður fyrir óæskilegri hegðun nemenda, mikilvægt að byggja upp traust og eiga gott samband við nemendur, leysa vandamál og vinna í teymum. Að auki er mikilvægt að kynna sér misjafnar aðferðir við bekkjarstjórnun. Hér eru hugtök eins og umhyggja, reisn, vinsemd, gagnkvæm virðing og festa mikilvæg og höfð að leiðarljósi.
Það eru 3 viðhorf og 4 tegundir af hæfni sem leitast er við að nemendur tileinki sér þegar unnið er með jákvæðan aga:
Þessi 3 viðhorf nemenda, ég get, ég tilheyri og ég hef áhrif ásamt 4 hæfniviðmiðunum eru styrkt og unnið með á bekkjarfundum eða í svokölluðum gæðahring.
Það eru 4 ástæður fyrir því að fólk gerir það sem það gerir og við reynum að leitast við að greina orsakir hegðunarinnar, vinna með orsakirnar en þessar ástæður eru:
Það eru 3 viðhorf og 4 tegundir af hæfni sem leitast er við að nemendur tileinki sér þegar unnið er með jákvæðan aga:
- Sjálfstraust (viðhorf nemenda: „ég get“). Nemendur þurfa öruggt andrúmsloft til að prófa sig áfram með nám og hegðun án þess að vera dæmdir um rétt eða rangt.
- Að tilheyra (viðhorf nemenda: „ég tilheyri og mín er þörf“). Nemendur þurfa að upplifa að deila tilfinningum, hugmyndum og hugsunum og upplifa að þær séu teknar alvarlega, til að öðlast tilfinningu fyrir að vera mikilvægur í samfélaginu.
- Áhrif (viðhorf nemenda: „ég hef áhrif á umhverfi mitt og líf“). Þurfa að upplifa umhverfi sem leggur áherslu á hvatningu og áreiðanleika og að þeir hafi áhrif á líf sitt.
- Innsæi og tilfinningagreind. Læra að skilja tilfinningar og þar af leiðandi sjálfsstjórn, sjálfsaga og hvernig læra má af reynslunni.
- Samskiptahæfileikar. Samvinna, virk hlustun, samhygð og samningar.
- Ábyrgð. Hæfni við að bregðast við takmörkunum og afleðingum í daglegu lífi með ábyrgð, heiðarleika og sveigjanleika.
- Dómgreind. Hæfni til að nýta reynslu og þekkingu til að meta aðstæður og aðgerðir. Hvað er rétt og rangt.
Þessi 3 viðhorf nemenda, ég get, ég tilheyri og ég hef áhrif ásamt 4 hæfniviðmiðunum eru styrkt og unnið með á bekkjarfundum eða í svokölluðum gæðahring.
Það eru 4 ástæður fyrir því að fólk gerir það sem það gerir og við reynum að leitast við að greina orsakir hegðunarinnar, vinna með orsakirnar en þessar ástæður eru:
- Athygli
- Vald
- Hefnd
- Uppgjöf