Anný Björg Pálmadóttir Sjúkraþjálfari BS M.ed. nemi við UNAK
Anný er 5 barna móðir frá Húsavík sem hún telur einn dásamlegasta stað veraldar. Hún lærði þar sjúkraliðann samhliða stúdentsprófinu og vann við það í 1 ár áður en hún hélt til Danmerkur. Í Danmörku hjólaði hún gríðarlega mikið, vann við heimahlynningu, lærði sjúkraþjálfun og dönskuna sem hún annars hafði lofað framhaldsskólakennara sínum að hún skildi aldrei nota. Eftir háskóla í Danmörku flutti hún til Akureyrar þar sem hún hóf störf á endurhæfingarstöðinni Bjargi og hefur verið þar síðan fyrir utan eitt tilraunaár í Reykjavík sem var alls ekki að ganga upp fyrir sveitalúðann. Auk sjúkraþjálfunarinnar á Bjargi hefur hún líka kennt í líkamsræktinni og þá helst box, spinning og þrektíma.
Helga Ragnheiður Jósepsdóttir Vöruhönnuður BA M.ed. nemi við UNAK
Helga er fædd og uppalin á Eskifirði, lærði málmsmíðar í menntaskóla og vann lengi sem vörubílstjóri. Hún er með BA gráðu í Vöruhönnun frá Listháskóla Íslands og IED í Madrid. Meirihlutanum af sínum fullorðinsárum hefur hún dvalið í suður Evrópu og talar spænsku betur en margir innfæddir. Eftir námið starfaði hún sem skólastjóri í Hönnunar og Arkitektúr Sumarskóla VITRA í Frakklandi í 2 ár, og núna síðustu 3 annirnar sem kennari í VMA, í hönnun, frumkvöðlafræði, teikningu og tækni.