UPPBYGGINGARSTEFNAN VS. JÁKVÆÐUR AGI
Hvað er líkt og ólíkt með þessum tveimur stefnum ?
Þessar agastjórnunaraðferðir miða báðar að því að þroska siðgæðisvitund nemenda og ná fram viðeigandi hegðun í skólastarfi og utan þess.
Það sem er líkt með þessum tveimur stefnum:
Það sem er lítið líkt með þessum tveimur stefnum:
Grunnmunurinn á þessum tveimur stefnum :
Það sem er líkt með þessum tveimur stefnum:
- Sama grundvallarhugsunin
- Þarfir einstaklingsins í fyrirrúmi, leitað innávið
- Orsaka fyrir hegðun leitað
Það sem er lítið líkt með þessum tveimur stefnum:
- Mikil áhersla á bekkjarfundi í Jákvæðum Aga - hópurinn // Einstaklingurinn leysir úr sínum eigin vandamálum í Uppbyggingarstefnunni
- Svokölluð verkfærakista notuð við framkvæmdina í Jákvæðum Aga // Grunnþarfir og þekkja tilfinningar sínar eru notaðar í Uppbyggingarstefnunni.
Grunnmunurinn á þessum tveimur stefnum :
- í Uppbyggingarstefnunni er það einstaklingur sjálfur sem viðurkennir og metur brot sín, og ákveður sjálfur hvernig hann muni bæta fyrir þau. Einnig er það einstaklingurinn sjálfur sem setur sér viðmið og markmið í upphafi um hvernig persóna hann vilji vera, og hvað sé æskileg hegðun, Einstaklingurinn sjálfur hefur vald yfir sínu lífi.
- Jákvæður agi - snýst um að tilheyra, og að það sé hópurinn (bekkurinn) sem ákveði sameiginleg markmið og taki saman á vandamálum sem upp koma.