JÁKVÆÐUR AGI
Framkvæmd
Bekkjarfundir eða gæðahringir eru mikilvægir til að taka á málefnum og vangaveltum og eru í raun uppistaðan í Jákvæðum aga því þar er tækifæri til að ræða hlutina og koma á framfæri því sem þarft er. Mikil áhersla er lögð á að kenna nemendum hvernig bekkjarfundir fara fram og nokkrir hlutir sem hafðir eru í huga.
Á bekkjarfundum læra nemendur að tjá sig, finna lausnir og fylgja þeim eftir. Þeir læra að gera mistök, taka ábyrgð á þeim sem og að taka ábyrgð á eigin gjörðum og kenna ekki öðrum um. Nemendurnir kynnast því að þeir geta ekki stjórnað öllu sem gerist eða stjórnað öðru fólki en geta lært að stjórna hvernig þeir bregðast við mismunandi aðstæðum þ.e.a.s geta haft stjórn á hegðun sinni. Einnig að allar tilfinningar eiga rétt á sér og skulu viðurkennast en að þeir geti ekki brugðist við þeim á hvaða hátt sem er. Þeir læra að tjá tilfinningar sínar á misjafnan hátt og nota ég-boð. Á bekkjarfundum eru nemendur oft fúsari til að hlusta á jafningja fremur en kennara og geta því kennt hvert öðru ýmislegt. Þar geta þeir þróað samskiptahæfni sína, deilt skoðunum, reynslu og tilfinningum. Nemendurnir hlusta hvert á annað, setja sig í spor annarra, semja og hjálpast að við að leysa deilumál. Þau æfa sig í að velja ábyrga kosti og fá tækifæri og hvatningu til að meta kosti og galla og taka ákvarðanir í umhverfi sem leggur áherslu á viðleitnina til að gera betur.

Hugmyndir og leiðir að jákvæðum aga
- Gagnkvæm virðing. Fullorðnir eru fyrirmyndir með því að sýna sjálfsvirðingu og sýna nemendum virðingu og góðvild.
- Skilgreina hvað býr að baki hegðun. Áhrifaríkur agi getur leitt í ljós ástæður þess börn gera eins og þau gera og vinna í því að breyta þessum viðhorfum í stað þess að breyta hegðuninni.
- Áhrifarík samskipti og úrlausnir vandamála.
- Agaleiðir sem kenna.
- Beina athygli að lausnum í stað refsinga.
- Hvatning í stað þess að lofa. Hvatning er er ekki bara að einblína á árangur heldur framför og fyrirhöfnina, byggir upp langtíma sjálfsálit.
Verkfærakistan
- Takmarkaðir valkostir – nemendum boðið að velja um 2 hluti, t.d hvorri bókinni viltu byrja á?
- Hlutverk í kennslustofunni – nemendur fá hlutverk og þannig tækifæri til að leggja sitt af mörkum. Láta hlutverkin „rótera“ þannig að þau skipti um hlutverk á ákveðnu tímabili.
- Þrautalausnir/Sáttastöðvar – hunsa vandamálið með því að ganga burt, kæla sig niður og taka jákvæða einveru. Skiptast á sjónarmiðum og hlusta af virðingu og finna sameiginlega lausn. Ef vilji er fyrir að taka málefnið upp á bekkjarfundi.
- Eftirfylgni með virðingu og reisn – meina það sem við segjum, halda sig við samkomulagið.
- Spyrja „hvað, hvers vegna, hvernig“ – vera tilbúin að hlusta á útskýringar. Opnar spurningar.
- Að gera ekkert – getur oft verið gott í stað þess að halda að við getum bjargað öllu.
- Að ákveða hvað þú gerir – getum ekki stjórnað öðrum en muna að við getum stjórnað okkar viðbrögðum.
- Reyna að nota „já“ en nota annars „nei“ með virðingu og reisn.
- Framkvæma meira, tala minna.
- Allir í sama bátinn – allir taka þátt í að leysa deilumál.
- Jákvæð einvera – valkostur sem nemendur geta átt. Stundum gott að draga sig í hlé til að láta sér líða betur.